Úrslit leikja í 2. deild, Víkingur E HK A og Víkingur F/Örninn HK B
Jóhann Emil og Magnús.
Tveir leikir voru spilaðir í 2. deild karla í gærkvöldi, 22. nóvember. Víkingur E lék á móti HK A og sameinað lið Víkings F og Arnarins lék á móti HK B. Um hörkuleiki var að ræða sem réðust báðir í síðasta leik þar sem nýliðinn Hörður landaði sigri fyrir Víking E og reynsluboltinn Árni Ziemsen halaði inn sigri fyrir Víking F/Örninn. Úrslitin sýna svo ekki verður um villst að unglingarnir okkar eru á hraðri siglingu, þ.e. Jóhann og Magnús Víkingi og Arnór/Adrian/Björn í HK. Hörður er svo öflugur liðsauki fyrir Víkinga í stöðugri framför. Sannast hið fornkveðna að æfingin skapar meistarann. Mega þeir eldri fara að taka sig á og taka ungviðið sér til fyrirmyndar enda ungu drengirni hungraðir í fleiri sigra. Geri þeir það ekki gætu þeir vaknað upp við vondan draum á komandi Íslandsmóti.