Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Úrslit úr Akursmótinu 19. apríl

Borðtennisdeild Akurs hélt mót í Íþróttahúsi Glerárskóla á Akureyri sunnudaginn 19. apríl. Keppendur voru 24 frá 4 félögum, Akri, BH, HK og Leikni. Keppni var auglýst í öllum flokkum karla og kvenna en aðeins ein kona skráði sig til leiks og keppti hún með körlunum í 2. flokki.

Benedikt Darri Malmquist, HK, sigraði í meistaraflokki, Markus Meckl, Akri í 1. flokki og Brynjar Gylfi Malmquist, HK, í 2. flokki.

Verðlaunahafar:

Meistaraflokkur karla (sjá mynd á forsíðu)
1. Benedikt Darri Malmquist, HK
2. Markus H. Meckl, Akur
3. Lukasz Stycznski, Akur

1. flokkur karla
1. Markus H. Meckl, Akur
2. Hlynur Sverrisson
3.-4. Andri Sigurjón Hrundarson, HK
3.-4. Brynjar Gylfi Malmquist, HK

2. flokkur karla
1. Brynjar Gylfi Malmquist, HK
2. Andri Sigurjón Hrundarson, HK
3.-4. Jörundur Steinar Hansen, HK
3.-4. Sindri Karl Heimisson, HK

Úrslit úr öllum leikjum má finna á vef Tournament Software, https://www.tournamentsoftware.com/tournament/7956cce3-d14b-436b-bb3a-f30b1c160158

Myndir frá Elvari Thorarensen.

Aðrar fréttir