Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Úrslit úr einliðaleikjum Matthíasar á EM U21

Matthías Þór Sandholt lék þrjá einliðaleiki á EM U21 árs í Bratislava þann 7. maí. Matthías tapaði öllum leikjunum, en vann samtals þrjár lotur.

Matthías lék í riðli 9 og mætti fyrst Julian Rzihauscek frá Austurríki og tapaði þeim leik 0-3. Því næst lék hann við Pert Marten Lehtlaan frá Eistlandi og tapaði þeim leik naumlega, 8-11 í oddalotu. Lokaleikurinn var við Hugo Deschamps frá Frakklandi en honum tapaði Matthías 1-3. Eistinn vann alla leiki sína og þar með riðilinn.
Tveir efstu leikmennirnir úr riðlinum fara áfram í næstu umferð keppninnar og Matthías er því fallinn úr keppni í einliðaleik, en frammistaðan lofar góðu fyrir framtíðina.

Þann 8. maí leikur Matthías í tvíliðaleik og tvenndarleik. Í báðum greinum er keppt með útsláttarfyrirkomulagi.
Hann byrjar á tvenndarleik með Anjali Singh frá Írlandi. Kl. 9.35 að staðartíma mæta þau grísku pari, þeim Alexandros Madesis og Malamatenia Papadimitriou.
Kl. 11 er svo komið að tvíliðaleik, en þar er Lassi Lehtola frá Finnlandi meðspilari Matthíasar. Þeir leika gegn Leon Benko og Ivan Hencl frá Króatíu.

Hér má fylgjast með úrslitum frá mótinu: https://www.ettu.org/european-under-21-championships/

Aðrar fréttir