Úrslitakeppni í Raflandsdeild karla hefst á morgun mánudaginn 12. mars 2018
Úrslitakeppnin í Raflandsdeild karla fer hefst mánudaginn 12. mars en þá mætast A lið Víkinga og lið BH.
Viðureignin á morgun mánudag verður í TBR húsinu við Gnoðarvog í Reykjavík og hefst hún kl. 20.00. Viðureign nr. 2 verður í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði nk. miðvikudag 14. mars og hefst hún kl. 19.00.
Oddaviðureign, ef þörf krefur, verður í TBR-húsinu föstudaginn 16. mars.
Það lið verður Íslandsmeistari, sem fyrr vinnur tvær viðureignir.