Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Úrslitakeppnin í 1. deild kvenna hefst 11. apríl

Úrslitakeppnin í 1. deild kvenna hefst mánudaginn 11. apríl. Þá tekur Víkingur-A á móti HK og KR-A og KR-B leika innbyrðis. Leikur Víkings-A og HK hefst kl. 18.30 en leikur KR-liðanna kl. 19.30.

Miðvikudaginn 13. apríl eiga svo HK og KR-B heimaleiki. Heimaleikur HK verður i Snælandsskóla kl. 18 en heimaleikur KR-B hefst kl. 19.30 í Íþróttahúsi Hagaskóla.

Oddaleikir, ef með þarf, fara fram fimmtudaginn 14. apríl.

Á forsíðumyndinni má sjá lið HK.

 

ÁMU

Aðrar fréttir