Úrslitakeppnin í deildakeppninni fer fram 22., 29. og 30. apríl
Úrslitakeppnin í deildakeppninni keppnistímabilið 2022-2023 fer fram 22. og 29. apríl í öllum karladeildum og úrslitaleikur í 1. deild kvenna fer fram 30. apríl. Leikið verður í Íþróttahúsi Hagaskóla.
Laugardaginn 22. apríl fara fram undanúrslit í öllum deildum karla. Þessi lið mætast:
3. deild karla – kl. 10.00
KR E – Garpur A
Víkingur C – HK D
2. deild karla – kl. 12.30
HK B – HK C
KR B – BR A
1. deild karla – kl. 15.00
BH A – HK A
KR A – BH B
Laugardaginn 29. apríl mætast liðin sem sigruðu í undanúrslitunum í karladeildunum.
Sunnudaginn 30. apríl kl. 13.00 fer svo fram úrslitaleikurinn í 1. deild kvenna en þar mætast lið KR og Víkings
Tímasetning leikja 29. apríl
- kl 12:00: 2. deild: HK B – KR B
- kl 12:00: 3. deild: KR E – Víkingur C
- kl 17:00: 1. deild karla úrslit: BH A – KR A
Tímasetning leikja 30. apríl
- kl 13:00: 1. deild kvenna úrslit: Víkingur – KR
Dagsetning umspilsleikja hefur ekki verið ákveðin en leikið verður á hlutlausum velli.
Fréttin hefur verið uppfærð, 19.04.2023
Fréttin var uppfærð aftur 23.04.2023
Fréttin var uppfærð aftur 26.04.2023