Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Úrslitakeppnin í Raflandsdeild kvenna hefst 19. mars

Úrslitakeppnin í Raflandsdeild kvenna hefst mánudaginn 19. mars en þá mætast A lið KR og lið Víkings.

Fyrsta viðureignin verður í Íþróttahúsi Hagaskóla 19. mars og hefst hún kl. 20.00.

Viðureign nr. 2 verður í TBR húsinu við Gnoðarvog miðvikudaginn 21. mars.

Oddaviðureign, ef þörf krefur, verður í Íþróttahúsi Hagaskóla föstudaginn 23. mars.

Það lið verður Íslandsmeistari, sem fyrr vinnur tvær viðureignir.

 

ÁMU

Aðrar fréttir