Úrslitaleikir í 1. deild karla.
Fresta verður síðari undanúrslitaleik Víkings A og Víkings B sem fram átti að fara á morgun í TBR húsinu vegna lögmætra forfalla Daða Freys Guðmundssonar sem í skyndingu fór á fæðingardeild i dag þar sem hann og konan hans á von á barni. Er þannig ljóst að ekki næst að klára undanúrslitaleikina báða fyrir páska. Í kvöld fer hins vegar fram síðari leikur KR A og Víkings C í TBR húsinu kl. 20:00.
Mótanefnd hefur ákveðið vegna ofangreinds að færa úrslitaleiki deildarinnar fram í vikuna 8. til 14. apríl nk. Verða nánari tímasetningar kynntar síðar þegar ljóst er hvaða lið keppa til úrslita.