Úrslitin í deildarkeppninni ráðast á sunnudaginn
Á sunnudaginn, 5. febrúar, ræðst hvaða lið verður deildarmeistari í 1. deild karla, hvaða lið fara í úrslitakeppnina og hvaða lið fellur í 2. deild.
Þá ræðst hvort það verður Víkingur eða KR-B sem mætir KR-A í úrslitakeppni 1. deildar kvenna.
Þrjú lið eiga möguleika á að verða deildarmeistarar í 1. deild karla: KR-A hefur forystu með 14 stig, Víkingur-A og BH hafa 12 stig. KR-A og BH leika á sunnudaginn.
Þrjú lið geta fallið í 2. deild: KR-B og HK, sem hafa 4 stig, og Víkingur-B sem hefur 2 stig. Síðastnefndu liðin leika einmitt innbyrðis á sunnudaginn. Efsta lið þessara þriggja fer í úrslitakeppnina og liðið sem verður í 5. sæti mun leika umspilsleik við liðið í 2. sæti í 2. deild um sæti í 1. deild á næsta keppnistímabili.
Það lið verður deildarmeistari sem hefur flest stig að lokinni keppni. Ef tvö eða fleiri lið verða jöfn gildir hlutfall unninna og tapaðra leikja í öllum leikjum deildarinnar, skv. reglugerð um flokkakeppni.
Þessir leikir fara fram:
Karlar
9. umferð kl. 10.30
- Víkingur-A – KR-B
- BH – KR-A
- HK-A – Víkingur-B
10. umferð kl. 13.30
- BH – KR-B
- HK-A – Víkingur-A
- Víkingur-B – KR-A
Konur
9. umferð kl. 10.30
- KR-A – Víkingur-A
- KR-D – KR-C
- KR-B situr hjá
10. umferð kl. 12.30
- KR-D – Víkingur-A
- KR-C – KR-B
- KR-A situr hjá
Á forsíðunni má sjá deildarmeistara Víkings-A frá síðasta keppnistímabili.
ÁMU