Úthlutanir úr Styrktarsjóði BTÍ fyrir keppnistímabilið 2025-2026
Stjórn BTÍ hefur í janúar afgreitt umsóknir til Styrktarsjóðs BTÍ fyrir keppnistímabilið 2025 til 2026, sem uppfylla markmið BTÍ. Alls bárust umsóknir frá tólf einstaklingum og ein frá félagi vegna mótahalds.
Allir einstaklingarnir fengu styrk en umsóknum um eitt frekara verkefni á vegum þeirra var hafnað.
Eftirtalin verkefni fengu styrk að þessu sinni (í stafrófsröð):
Benedikt Aron Jóhannsson og Eiríkur Logi Gunnarsson fá styrki vegna æfingadvalar hjá BTK Rekord í Helsingborg í Svíþjóð keppnisárið 2025-2026
Gestur Gunnarsson fær styrk vegna þátttöku sem keppandi og þjálfari á mótum í Trelleborg og Hróarskeldu.
Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, Helena Árnadóttir og Skúli Gunnarsson (sem þjálfari) fá styrk vegna þátttöku á Ängby móti í Svíþjóð.
Hannes Þ. Guðrúnarson fær styrk sem dómari á WFH í Halmstad í Svíþjóð.
Ingi Darvis Rodriguez fær styrk til dvalar í Halmstad í Svíþjóð keppnisárið 2025-2026 til að helga sig borðtennisíþróttinni og m.a. keppa í Superettan með Vetlanda BTK.
Lúkas André Ólason og Marta Dögg Stefánsdóttir fá styrk vegna þátttöku á móti í Hróarskeldu.
Magnús Gauti Úlfarsson fær styrk vegna þátttöku í fjórum til níu sænskum mótum.
Sól Kristínardóttir Mixa fær styrk til dvalar í Halmstad í Svíþjóð keppnisárið 2025-2026 til að helga sig borðtennisíþróttinni og m.a. keppa í Pingisligan með Åstorps BTK og í dönsku deildinni.
Þá var koma erlendra leikmanna á íslenskt mót styrkt á Reykjavík International Games 24. janúar 2025.
Styrkir verða greiddir út að verkefnum og stuttum skýrsluskilum loknum.


