Verkefni landsliðshópanna keppnistímabilið 2026-2027
Sindre Åteigen, landsliðsþjálfari, hefur sett saman lista yfir verkefni landsliðshópanna keppnistímabilið 2026-2027, þ.e. bæði A-landsliðsins og unglingalandsliðsins. Einnig eru á listanum tillögur að mótum sem gætu hentað vel fyrir félög, sem vilja fara á mót erlendis.
Frá að listinn var tekinn saman hefur verið ákveðið að Sindre og leikmenn fari á Finlandia Open og Norway Open, en ekki á Belgium Open.
Einstakir leikmenn, sem ekki eru valdir til þátttöku á Norway Open og Finlandia Open sem landsliðsmenn, geta tekið þátt í þessum mótum á eigin kostnað. Þeir leikmenn sem hafa áhuga á að gera það þurfa að láta BTÍ vita með a.m.k. 6 vikna fyrirvara þannig að BTÍ geti skráð þá til þátttöku.
Listinn er birtur með fyrirvara um að á honum geti orðið breytingar:
Forsíðumyndin er af verðlaunahöfum í tvenndarleik á Íslandsmótinu 2026, úr myndasafni.


