Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Víkingar sigruðu í Bikarkeppni Borðtennissambands Íslands

Bikarmeistarar Víkings 2014 (Mynd: Ásta M. Urbancic)

Víkingar sigruðu lið frá KR (KR-Pardus) 4-3 í úrslitaleik í bikarkeppni Borðtennissambands Íslands, sem fram fór í Íþróttahúsi Hagaskóla í dag. Lið Víkings skipuðu Eyrún Elíasdóttir, Daði Freyr Guðmundsson og Magnús K. Magnússon. Í liði KR-Pardus voru Aldís Rún Lárusdóttir, Einar Geirsson og Hlöðver Steini Hlöðverssson.

Í úrslitaleiknum vann Einar Daða 3-2 og Magnús vann Hlöðver 3-0. Aldís vann Eyrúnu 3-2 og Víkingar unnu tvíliðaleik karla 3-0. Aldís og Einar sigruðu svo Eyrúnu og Magnús 3-2 í tvenndarkeppni og staðan 3-2 fyrir KR. Víkingar unnu svo síðustu tvo einliðaleikina þar sem Magnús vann Einar 3-1 og Daði vann Hlöðver 3-1 í 7, og síðasta leiknum. Niðurstaðan því 4-3 sigur Víkinga.

Í undanúrslitum lagði lið Víkings lið KR-Alfa (Sigrún Ebba Tómasdóttir, Gunnar Snorri Ragnarsson og Pétur Marteinn Tómasson) 4-1 en KR-Pardus vann mæðginin í KR-Kvisti (Guðrún Gestsdóttir, Pétur Gunnarsson, Skúli Gunnarsson) 4-2.
ÁMU

Aðrar fréttir