Víkingur-A sigraði HK í 1. deild karla í kvöld og fjórir aðrir leikir fara fram í vikunni
Í kvöld fór fram leikur í 1. deild karla sem hafði verið frestað þann 25. janúar sl. Víkingur-A tók á móti HK og sigraði 4-0.
Á morgun, 21. febrúar, fer fram leikur Víkings-C og Víkings-A, sem var frestað þann 8. febrúar sl.
Skv. leikjaáætlun í 1. deild karla fara síðan fram þrír leikir 22. febrúar í 9. umferð keppninnar: Víkingur-B tekur á móti KR-A og Víkingur-A leikur við Víking-D. HK tekur svo á móti Víkingi-C í Kópavogi.
ÁMU