Víkingur-B sigraði Víking-D í jöfnum leik í 1. deild karla
Víkingur-B sigraði Víking-D 4-3 í jöfnum og spennandi leik í 1. deild karla í TBR-húsinu í gærkvöldi. Kristján Jónasson vann báða leiki sína fyrir D-liðið og tvíliðaleikinn með Daníel Bergmann.
Leik Víkings-A og HK-A, sem einnig átti að fara fram í gærkvöldi, var frestað vegna veikinda.
Leik KR-A og Víkings-C, sem á að fara fram í KR-heimilinu í kvöld hefur einnig verið frestað vegna meiðsla.
ÁMU