Víkingur er deildarmeistari í 1. deild kvenna
Í dag fór fram seinni umferð í 1. og 2. deild kvenna í borðtennis.
Í lokaleik 1. deild kvenna léku Víkingur gegn KR A sem var úrslitaleikur í deildinni. Víkingur vann KR A 6-0 og er því deildarmeistari í 1. deild kvenna.
KR C sigraði í 2. deild kvenna en Garpur var í 2. sæti. Úrslit í 2. deild má finna á Tournament Software.
Úrslit í einstaka leikjum verða birt á Tournament Software.
Meðfylgjandi eru myndir af sigurvegurum í deildakeppni kvenna.
1. deild kvenna: 1. sæti: Víkingur, 2. sæti: KR A
Anja Handén, Agnes Svensson, Nevena Tasic, Eva Jósteinsdóttir (Víkingur) Helena Árnadóttir, Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, Sól Kristínardóttir Mixa og Aldís Rún Lárusdóttir (KR)

Deildarmeistarar í 2. deild: KR C
Þórunn Erla Gunnarsdóttir, Marta Dögg Stefánsdóttir, Ársól Clara Arnardóttir, Kristjana Áslaug Káradóttir Thors

2. deild kvenna, 2. sæti: Garpur
Weronika Grzegorczyk, Lea Mábil Andradóttir, Sóldís Lilja Sveinbjörnsdóttir og Guðný Lilja Pálmadóttir



