Víkingur Íslandsmeistari í 1. deild karla og kvenna

Úrslitaleikir um Íslandsmeistaratitlana í 1. deild karla og 1. deild kvenna fóru fram í TBR-húsinu laugardaginn 25. apríl. Leikið hafði verið í deildakeppninni veturinn 2025-2026 og undanúrslit í 1. deild karla voru leikin 11. apríl.
Að lokinni keppni vetrarins stóðu tvö lið eftir í 1. deild karla: Deildarmeistarar Víkings-A og lið BH-A, sem varð í 2. sæti í deildinni.
Í 1. deild kvenna léku deildarmeistarar Víkings til úrslita við KR-A, sem hafnaði í 2. sæti deildarinnar.
Lið Víkings urðu Íslandsmeistarar bæði í 1. deild karla og kvenna, og báða úrslitaleikina unnu Víkingar örugglega 4-0. Þetta er þriðja árið í röð sem karlalið Víkings verður Íslandsmeistari en kvennalið Víkings endurheimti titilinn sem lið BH vann í fyrra.
1. deild karla

Víkingur-A – BH-A 4-0
Fyrir Víking-A léku Alexander Fransson Klerc, Charlie Widing og Ingi Darvis Rodriguez í úrslitaleiknum. Auk þeirra léku Benedikt Aron Jóhannsson, Carl Sahle, Daði Freyr Guðmundsson og Nevena Tasic með liðinu í vetur.
Slóð á úrslitakeppnina í 1. deild karla á vef Tournament Software:
https://www.tournamentsoftware.com/sport/draw.aspx?id=C2D4D3D3-E92B-400E-A8C6-6056B4B1C4A8&draw=18
1. deild kvenna

Víkingur – KR-A 4-0
Fyrir Víking léku Anja Handén, Eva Jósteinsdóttir og Nevena Tasic í úrslitaleiknum. Auk þeirra lék Agnes Svensson með liðinu í vetur.
Slóð á úrslitakeppnina í 1. deild kvenna á vef Tournament Software:
https://www.tournamentsoftware.com/sport/teammatch.aspx?id=C2D4D3D3-E92B-400E-A8C6-6056B4B1C4A8&match=388
Myndir frá Gunnari Skúlasyni, Mariu Valladolid og Pétri Stephensen.


