Víkingur Íslandsmeistari í 1. deild kvenna.
Eva Jósteinsdóttir og Lilja Rós Jóhannesdóttir Víkingi
Í kvöld fór fram seinni úrslitaleikurinn í 1. deild kvenna í TBR húsinu. Nokkur eftirvænting lá í loftinu þar sem fyrri leikur liðanna sem var jafn gaf tilefni til þess að ætla að leikurinn yrði spennandi. Hafa leikir liðanna sem hafa á að skipa leikreyndustu konum landsins verið fjörugir í vetur en þær Eva og Lilja komu aftur til leiks fyrir tveimur árum síðan og þær Aldís og Guðrún í fyrra. Víst er að þær hafa styrkt keppnir kvenna á mótum og í deildinni í vetur.