Víkingur og KR-A mætast í 1. deild kvenna í kvöld
Þriðjudagskvöldið 10. apríl leika tvö efstu liðin í 1. deild kvenna, Víkingur og KR-A í TBR-húsinu kl. 20 í leik sem var frestað frá 29. mars. Með sigri tryggja Víkingskonur sér deildarmeistaratitilinn.
Enn á eftir að leika leik Dímonar og Víkings, sem átti að fara fram 3. mars og verður það síðasti leikurinn í deildinni fyrir úrslitakeppni.
ÁMU