Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Víkingur sigraði KR-A í 1. deild kvenna og er deildarmeistari

Víkingur og KR-A mættust í kvöld í 10. umferð 1. deildar kvenna. 

Víkingskonur sigruðu 3-0 og eru þar með búnar að tryggja sér deildarmeistaratitilinn þrátt fyrir að eiga einn leik eftir. Þessi lið eru í 1. og 2. sæti deildarinnar og mætast í úrslitakeppninni.

Síðasti leikur deildarinnar fer fram 11. apríl, þegar Víkingur sækir Dímon heim í Íþróttamiðstöðina á Hvolsvelli. Með sigri kemst Dímon í 3. sæti deildarinnar en ef Víkingur sigrar er KR-B í 3. sæti.

Á mynd Finns Hrafns Jónssonar frá Íslandsmótinu 2012 má sjá deildarmeistara Víkings, þær Lilju Rós Jóhannesdóttur, Evu Jósteinsdóttur og Eyrúnu Elíasdóttur.

ÁMU

Aðrar fréttir