Vilt þú starfa í nefndum Borðtennissambands Íslands?
Borðtennissambandið auglýsir eftir áhugasömum einstaklingum til að taka sæti í einhverri af nefndum sambandsins á næsta keppnistímabili.
Flestar nefndir sambandsins eru skipaðar þremur meðlimum, þar af a.m.k. einum úr stjórn sambandsins.
Nefndirnar sem um ræðir:
Landsliðsnefnd
Mótanefnd
Útbreiðslunefnd
Dómarafélagið
Landsliðsnefnd sér um samskipti við landsliðsþjálfarana tvo og styður við skipulagsmál landsliðs- og unglingalandsliðsverkefna.
Mótanefnd sér um utanumhald mótadagatals BTÍ og svarar spurningum um skipulags- og vafaatriði því tengt.
Útbreiðslunefnd leggur áherslu á að hvetja til og styðja við stofnun nýrra borðtennisdeilda víða um land og að styðja við borðtennisfræðslu.
Dómarafélagið stendur fyrir a.m.k. einu dómaranámskeiði á ári og aðstoðar við að úthluta yfirdómarum á mót/deildarkeppni.
Áhugasamir sendi tölvupóst á netfangið [email protected] í síðasta lagi 30. maí nk., þar sem komi fram af hverju viðkomandi hefur áhuga á að starfa í nefndinni. Stjórn á von á því að í öllum tilfellum haldi einhver nefndarmanna frá keppnisárinu 2025-2026 áfram keppnistímabilið 2026-2027, þannig að ekki verði um algjöra endurnýjun að ræða.
Sömuleiðis óskar ný stjórn eftir að áhugasamir einstaklingar um fjáröflun eða utanumhald deildanna (sem eftir atvikum gæti verið launað verkefni) hafi samband á sama netfang fyrir 30. maí nk.


