Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

image description

Wijzenbeek Westa varð hollenskur meistari í gær eftir sigur á Enjoy & Deploy

Enjoy & Deploy Zoetermeer, lið Guðmundar Stephensen, lék til úrslita um hollenska meistaratitilinn í borðtennis í gær. Liðið, sem var haustmeistari deildarinnar mætti vormeisturum Wijzenbeek Westa í úrslitaleiknum. Westa sigraði 4-2 og því hollenskur meistari.

Guðmundur lagði Martijn de Vries 3-1 í opnunarleiknum og sigraði 3-0 í tvíliðaleik ásamt félaga sínum Nathan var der Lee. Guðmundur tapaði síðan seinni einliðaleik sínum fyrir Daan Sliepen 1-3.


ÁMU

Aðrar fréttir