Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Lúkas og Þórunn hækkuðu mest á styrkleikalistanum á milli ára

Lúkas André Ólason, KR, hækkaði mest allra á styrkleikalista BTÍ frá 1. júní 2025 til 1. júní 2026 en hann bætti sig um 250 stig á milli ára. Lúkas hækkaði næstmest allra í fyrra. Viktor Daníel Pulgar, KR, hækkaði næstmest á listanum, en hann bætti sig um 246 stig á milli ára. Heiðar Leó Sölvason, BH, var í þriðja sæti á þessum lista annað árið í röð, en hann bætti sig um 207 stig á milli ára. Rétt á eftir, í 4. sæti, er Ibrahim Hossam Al-Masry, BR, sem bætti við sig 206 stigum á milli ára.

Þórunn Erla Gunnarsdóttir, KR, hækkaði mest kvenna á listanum en hún bætti sig um 148 stig á milli ára. Næst á eftir kom Marta Dögg Stefánsdóttir, KR, sem bætti sig um 128 stig. Lea Mábil Andradóttir, Garpi bætti sig þriðja mest kvenna, en hún bætti við sig 95 stigum á milli ára.

Alls bættu 17 karlar við sig meira en 100 stigum á milli ára. Þeir sem koma næstir á eftir þeim fjórum sem áður voru taldir eru Kristján Ágúst Ármann, BH (194 stig); Andri Sigurjón Hrundarson, HK (177 stig); Benedikt Aron Jóhannsson, Víkingi (165 stig) og bræðurnir Benedikt Darri Malmquist, HK (145 stig) og Brynjar Gylfi Malmquist, HK (145 stig).

Leiða má líkum að því að bróðurpartur þeirra sem hafa óbreyttan stigafjölda á styrkleikalista 1. júní 2025 og 1. júní 2026 hafi ekki tekið þátt í mótum í einliðaleik keppnistímabilið 2025-2026.

Þegar þessi samanburður var gerður voru leikmenn sem léku síðast árið 2022 ennþá inni á styrkleikalistanum, en þegar næsti listi verður birtur, 1. október 2026, verður búið að hreinsa þá leikmenn út.

Í viðhengjum er merkt við leikmenn, sem komu aftur inn á listann með gömul styrkleikastig og við þá nýju leikmenn, sem voru metnir inn á listann vegna árangurs á sínum fyrstu mótum. Sú merking er ekki tæmandi.

Sjá nánar í viðhengjum:

Styrkleikalisti 2026-2025 samanburður karlar

Styrkleikalisti 2026-2025 samanburður konur

Myndir af Lúkasi og Þórunni úr myndasafni BTÍ.

Aðrar fréttir