Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

BH-A og Víkingur efst í Keldudeildunum eftir sex umferðir

Keppni hélt áfram í Keldudeildum karla og kvenna laugardaginn 23. janúar í TBR-húsinu en þá var leikið í 5. og 6. umferð.

Í Keldudeild kvenna hafa öll liðin mæst tvisvar innbyrðis en leikin verður þreföld umferð í deildinni að þessu sinni. Víkingskonur eru efstar að loknum sex umferðum en þær hafa 10 stig. KR-A er í 2. sæti með 8 stig, BH hefur 4 stig og KR-B með 2 stig. Víkingur og KR-A mættust innbyrðis í 6. umferð og hafði Víkingur sigur 3-1.

A-lið BH er efst í Keldudeild karla eftir 6 umferðir, en liðið hefur 12 stig og er ósigrað. BH-A lagði KR-A 3-2 í 6. umferðinni þar sem sigurinn réðst í oddalotu. Víkingur-A fylgir fast á eftir BH-A með 10 stig. KR-A og HK-A hafa 6 stig, Víkingur-B er með 2 stig og HK-B hefur ekkert stig.

Úrslit úr leikjum dagsins:

Konur

  • KR-B – Víkingur 0-3
  • BH – KR-A 0-3
  • BH – KR-B 3-1
  • Víkingur – KR-A 3-1

Karlar

  • KR-A – Víkingur-A 0-3
  • BH-A – HK-A 3-1
  • Víkingur-B – HK-B 3-1
  • Víkingur-B – Víkingur-A 0-3
  • HK-B – HK-A 1-3
  • KR-A – BH-A 2-3

Öll úrslit verða fljótlega birt á vef deildarinnar á Tournament Software, sjá https://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=509E4209-D195-4D45-BA48-7EE5FA3F4D18

Einnig verða úrslitin sett inn í lista yfir umferðir í deildinni, hægra megin á síðunni: https://bordtennis.is/umferdarodun-keldudeildar-karla-og-kvenna/

Næst verður leikið í deildinni laugardaginn 13. febrúar í Íþróttahúsi Snælandsskóla í Kópavogi og verða leiknir leikir í 7. og 8. umferð.

Forsíðumynd af A-liði BH frá vori 2019.

Aðrar fréttir