Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

BH Open verður haldið 23.-25. janúar 2026

BH Open 2026 verður haldið í fjórða sinn 23.-25. janúar 2026 í Íþróttahúsinu við Strandgötu 53 í Hafnarfirði.

Keppnisflokkum verður skipt í fjórar blokkir og má sjá í bréfi í viðhengi hvaða flokkar eru í hverri blokk.

Fyrirkomulag:
Keppa má í 4 flokkum alls, en þó einungis 1 flokki í hverri „blokk“. Ef of fáir skrá sig í einn flokk mun mótstjórn sameina flokka til þess að fá fleiri leiki.

Flokkar í 1. blokk hefjast á milli kl. 16:00-17:00 á föstudegi
Flokkar í 2. blokk hefjast á milli kl. 09:00-11:00 á laugardegi
Flokkar í 3. blokk hefjast á milli kl. 13:00-15:00 á laugardegi
*Skemmtiflokkur (18 ára og eldri) hefst 16:00 á laugardegi

Liðakeppnin í 4. blokk hefst kl. 09:00 á sunnudegi

Keppt verður í 3-4 manna riðlum í öllum flokkum þar sem efstu 2 fara áfram í beinan útslátt. Leiknar verða 3-5 lotur í öllum flokkum, nema í útsláttakeppninni í Meistaraflokki Elite karla og kvenna þar sem verða leiknar 4-7 lotur.

Meistaraflokkur Elite hefst á föstudegi en ef fleiri en 16 skrá sig verður útslátturinn kláraður á laugardagsmorgni (heldur áfram kl. 09:00 á laugardeginum).

Liðakeppnin
Hvert lið skal innihalda tvo leikmenn. Liðum verður raðað í styrkleika eftir meðalfjölda stiga leikmanna. Spilað verður í riðlum og svo útslætti þar sem leikið verður um öll sæti. Keppnisfyrirkomulagið í liðakeppninni verður:
A vs X
B vs Y
Tvíliðaleikur
Vinna þarf tvær viðureignir til að sigra liðsleikinn.

Liðum verður skipt í deildir eftir styrkleika, þ.a. efstu 8 liðin spila í A deild, næstu 8 spila í B deild og svo koll af kolli. Spilað verður uppá öll sæti í hverri deild fyrir sig.

Skemmtiflokkur 18 ára og eldri
Öllum yfir 18 ára aldri, sem æfa ekki reglulega borðtennis eða taka þátt á almennum mótum, er velkomið að taka þátt. Í raun er öllum frjálst að skrá sig en markmiðið er að skapa létta stemningu þar sem hver sem er getur verið með.

Skráning
Skráning fer fram í gegnum skráningarform BH. Skráningarformið má finna hér:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLScYBMIhPxpSiHxF_2h-SC5rihV1SwriL0w9bE_CswjgjcD_Kg/viewform?usp=publish-editor

Ef skráningarformið gengur ekki má senda skráningu með tölvupósti á netfang borðtennisdeildar BH, [email protected]. Í skráningu skal taka fram fullt nafn keppanda, kennitölu, félag og skal taka skýrt fram í hvaða flokkum keppandinn vill keppa í.

Skráningarfrestur rennur út þriðjudaginn 20. janúar kl 20:00.

Röðun
Raðað verður samkvæmt keppnisreglum BTÍ þar sem að lágmarki 4 leikmenn/lið fá röðun í hverjum flokki.
Raðað verður eftir styrkleikalista BTÍ 1. janúar 2026.

Þáttökugjöld

 Meistaraflokkur Elite kr 4000,-
 Liðakeppni (verð á mann) kr 3000,-
 Aðrir flokkar kr 3000,-
Gjaldið greiðist á mótsstað eða inn á bankareikning Borðtennisdeildar BH:
Kt: 620709-0180 & Rknr 0544-26-16207
Setjið í skýringu við greiðsluna fyrir hvaða leikmann greitt er. Sendið afrit á [email protected].
Leikmenn sem skrá sig í 3 flokka fá 4. frítt!

Verðlaun
Bikarar verða veittir fyrir efstu fjögur sætin í hverjum flokki, nema í flokkum þar sem verða peningaverðlaun.

Í Meistaraflokki Elite fær
1. sæti kr. 50.000,-.
2. sæti kr. 15.000,-.
3.-4. sæti kr. 7.500,-.

Í Liðakeppninni fær sigurliðið kr. 30.000,-.

Verðlaunafé í öðrum fullorðinsflokkum veltur á skráningu og verður auglýst þegar nær dregur.

Athugið að Meistaraflokkur Elite gefur stig fyrir 8 efstu sætin sem gilda inná lokamót BTÍ.

Samgöngur
Borðtennisdeild BH hvetur alla sem geta að nýta sér almenningssamgöngur til að koma sér á mótið.

Íþróttahúsið við Strandgötu liggur innan 3 mínútna göngufæris frá Firðinum, þar sem strætisvagnar stoppa. Vagn 1 fer frá BSÍ sem er innan göngufæris frá Reykjavíkurflugvelli, vagn 21 fer frá Mjódd, sem er aðkoma flestra strætisvagna utan af landi og vagn 55 fer frá Reykjanesbæ og Keflavíkurflugvelli. Þessir vagnar stoppa allir í
Firðinum.

Ef keppendur óska eftir að vera sóttir af sérstökum ástæðum skal hafa samband við mótsstjórn tímanlega í gegnum [email protected] undir yfirskriftinni “BHAkstur”. 

Búnaður
Borð: Butterfly EUROPA keppnisborð
Kúlur: Stiga Perform 3* 40+

Mótstjórn og Yfirdómari
Mótstjórn skipa Ingimar Ingimarsson, Jóhannes Bjarki Urbancic og Tómas Ingi Shelton. Allar fyrirspurnir til mótstjórnar skulu berast til [email protected].

Yfirdómari mótsins verður Pétur Marteinn Urbancic Tómasson, alþjóðlegur dómari ITTF.

Bréf um mótið með nánari upplýsingum:

BH Open 2026

Aðrar fréttir