Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmót öldunga 2026 verður haldið 9. maí

Íslandsmót öldunga í borðtennis 2026 fer fram í Íþróttahúsi Hagaskóla, Neshaga 3, laugardaginn 9. maí 2026. Mótið er í umsjón Borðtennissambands Íslands og haldið í samstarfi við Borðtennisdeild KR.

Leikið verður í fjórum aldursflokkum karla og kvenna í einliðaleik, fjórum aldursflokkum í tvíliðaleik og einum aldursflokki í tvenndarkeppni sbr. reglugerð Borðtennissambands Íslands um Íslandsmót.

Dagskrá
10:30 Tvenndarkeppni 40 ára og eldri, fædd 1986 og fyrr

11:30 Einliðaleikur karla 40-49 ára, fæddir 1977-1986
11:30 Einliðaleikur kvenna 40-49 ára, fæddar 1977-1986
11:30 Einliðaleikur karla 50-59 ára, fæddir 1967-1976
11:30 Einliðaleikur kvenna 50-59 ára, fæddar 1967-1976
11:30 Einliðaleikur karla 60-69 ára, fæddir 1957-1966
11:30 Einliðaleikur kvenna 60-69 ára, fæddar 1957-1966
11:30 Einliðaleikur karla 70 ára og eldri, fæddir 1956 og fyrr
11:30 Einliðaleikur kvenna 70 ára og eldri, fæddar 1956 og fyrr

14:00 Tvíliðaleikur karla 40-49 ára, fæddir 1977-1986
14:00 Tvíliðaleikur kvenna 40-49 ára, fæddar 1977-1986
14:00 Tvíliðaleikur karla 50-59 ára, fæddir 1967-1976
14:00 Tvíliðaleikur kvenna 50-59 ára, fæddar 1967-1976
14:00 Tvíliðaleikur karla 60-69 ára, fæddir 1957-1966
14:00 Tvíliðaleikur kvenna 60-69 ára, fæddar 1957-1966
14:00 Tvíliðaleikur karla 70 ára og eldri, fæddir 1956 og fyrr
14:00 Tvíliðaleikur kvenna 70 ára og eldri, fæddar 1956 og fyrr

Verðlaunaafhending verður að loknum úrslitaleikjum.

Fyrirkomulag keppni
Keppt verður í riðlum í einliðaleik og síðan leikið upp úr riðlum með einföldum útslætti. Í tvíliðaleik og tvenndarkeppni er leikið með einföldum útslætti skv. reglugerð um Íslandsmót. Þó verður leikið í riðli ef þrjú pör eru skráð til leiks skv. sömu reglugerð. Þrjár unnar lotur þarf til að vinna leik.

Skv. reglugerð um Íslandsmót er lágmarksþátttaka í hverjum aldursflokki tveir í einliðaleik og tvö pör í tvíliðaleik og tvenndarleik. Þeir flokkar sem ekki uppfylla þessi skilyrði falla niður og keppendur flytjast í næsta aldursflokk en veittur verður Íslandsmeistaratitill í þeim flokkum þar sem er skráður keppandi.

Við röðun í mótið verður farið eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ, þ.e. listanum frá 1. maí 2026.

Leikið verður með hvítum þriggja stjörnu Stiga kúlum.Leikmenn skulu leika í búningum síns félags. Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í öllum flokkum.

Þátttökugjöld og skráning
Síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 5. maí og fer fram hér.

*Ath! Skráning er eingöngu móttekin þegar greiðsla hefur tekist. Ekki er nóg að setja skráningu í körfu, heldur þarf að ljúka greiðsluferli.

Samkvæmt reglugerð er þátttaka á Íslandsmótum aðeins heimil íslenskum ríkisborgurum og erlendum ríkisborgurum sem hafa verið búsettir og átt lögheimili á Íslandi í þrjú ár þegar mót fer fram.

Þátttökugjald er 3.500 kr. í einliðaleik og 3.000 kr. fyrir parið í tvíliðaleik og tvenndarkeppni (1.500 kr. á mann).

Dregið verður í mótið í Íþróttahúsi Hagaskóla fimmtudaginn 7. maí kl. 20:00.

Mótstjórn
Ársól Clara Arnardóttir, [email protected], 867-0022
Viktor Daníel Pulgar

Yfirdómari
Elvar Pierre Kjartansson

Að móti loknu
Öðlingahópur Borðtennisdeildar KR hefur tekið frá borð á Rauða ljóninu að móti loknu og hvetur keppendur og stuðningsmenn til að mæta og fagna deginum saman.

Bréf um mótið: Íslandsmót öldunga 2026

Aðrar fréttir